Í gær var prinsessudagur í Vindáshlíð. Stelpurnar fengu það verkefni að hanna prinsessukjól úr klósettpappír. Hvert herbergi fékk eina klósettpappírsrúllu og bjó til kjól á eina stúlku úr hverju herbergi. Þetta heppnaðist mjög vel.
Gangan um daginn var farin á Írafell og nesti borðað á toppnum. Veðrið lék við okkur og á leiðinni tilbaka var orðið hlýtt og notalegt. Nokkrar notuðu þá tækifærið og böðuðu sig í læknum.