Halló kæra fólk, gleðin og stuðið heldur áfram hér í Vindáshlíð. Dagurinn í gær var frábær, farið var í göngu að Pokafossi og þar farið í leiki. Við ræddum áfram um fyrirgefninguna og hvað hún væri mikilvæg. Einnig um kærleikan, hvað væri mikilvægt að sýna náunga okkar umhyggju og kærleika. Gullnareglan rædd og allskonar. í kaffinu fengu þær pizzasnúða og kanillengjur, fisk og franskar í hádegismat og svo skyrbar og brauð í kvöldmat. Brennókeppnin heldur áfram og íþróttir – þær fóru í cheeriosgisk og nítíu gráður.
Margar fóru í föndur, njóta að teikna, skreyta og hlusta á tónlist á meðan aðrar fóru í aparólu, apabrú og nutu þess að vera úti.
Margar voru orðnar ansi þreyttar í gær og þá var smá stutt í heimþrá en allar fengu knús og klapp, pepp og sumar meira að borða. Allar sofnuðu þó á endanum og eiginlega allir voru sofandi þegar var komið að vekja í morgun kl 9 með stuðlögum.
Á eftir verður lasagna í matinn og svo er stefnan tekin á réttirnar okkar góðu í göngutúr. Við erum allar vel peppaðar fyrir deginum og hlökkum til að njóta með snúllunum okkar.
Minni á myndirnar okkar-bætist inn á hverjum degi.
Svo ef einhver verður sóttur fyrr á sunnudaginn þá endilega hringja og segja okkur frá því..
Kærleikskveðjur og knús,
Hanna Lára forstöðukona