Vindáshlíð fer nú af stað með Stubbaflokk í fyrsta skipti. Flokkurinn er stuttur, eða einungis tvær nætur, og er miðaður að 8 og 9 ára stúlkum sem hafa ekki komið í Vindáshlíð áður. Í flokknum verður farið yfir það helsta sem Vindáshlíð hefur uppá að bjóða í smærri sniðum. Flokkurinn er frábær undirbúningur fyrir stúlkur sem stefna á að koma í lengri flokk á næsta ári.

Verð í flokkinn er 24.900 krónur + rúta (3.100 kr.).

Skráning er hafin á https://www.sumarfjor.is/Slot.aspx?id=1797