Samkvæmt frétt frá Rannsóknasetri verslunarinnar á mbl. is í dag, mun jólagjöfin í ár vera "jákvæð upplifun." Þetta er niðurstaða dómnefndar sem hafði fengið hátt á annað hundrað tillögur að "jólagjöfinni í ár." "Þessi gjöf er talin falla að þeim tíðaranda sem nú ríkir. Í þessu vali felst að jólagjöfin veiti þeim sem fær gjöfina jákvæða upplifun og verðið rúmist innan fjárhags gefandans."
Í Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK að Holtavegi 28, Reykjavík fæst gjafakort í Vindáshlíð. Hægt er að kaupa kort fyrir öllu dvalargjaldi eða gefa upphæð að eigin vali. Gjafakortin gilda á alla viðburði á vegum Vindáshlíðar. Einnig í fjölskylduflokk sem haldin verður helgina 26.-28. febrúar næstkomandi. Gjafakortin eru því tilvalin sem gjöf og jákvæða upplifun fyrir alla fjölskylduna. Dagskrá fjölskylduflokks er eftirfarandi:

Föstudagur 26. febrúar

19:00 Kvöldmatur
20:00 Kvöldvaka í umsjón Hlíðarmeyja
21:30 Kvöldkaffi
Bænastund í kapellu í umsjón Rúnu Þráinsdóttur.
Íþróttahúsið opið

Laugardagur 27. febrúar

09:00 Vakið
09:00 – 09:55 Morgunmatur
10:00 „Heilbrigð sál í hraustum líkama“ fyrirlestur og hugleiðing í umsjón Laufeyjar Gísladóttur, kennara og einkaþjálfara.
10:00 Stund fyrir börnin í umsjón Berglindar Sigurvinsdóttur, hjúkrunarfræðings.
12:00 Hádegismatur
13:00 Frjáls tími. Möguleikar:
*Ganga Félagar úr gönguhópnum „Fúsir flakkarar“ leiða hópinn.
*Föndur Steinunn Jónsdóttir
*Íþróttahúsið opið

*Föðurímyndir í Disney teiknimyndum út frá kynjafræðinni. Nanna Björk *Rúnarsdóttir kynnir niðurstöður B.A. ritgerðar.
* Skíði í Skálafelli ef veður leyfir.

15:00 Kaffitími
15:30 Brennó í umsjón Steinunnar Jónsdóttir
Undirbúningur fyrir kvöldvöku
Afslöppun
Veisluförðun: Kamilla Hildur Gísladóttir, förðunarfræðingur, sýnir nýjustu strauma og stefnur í förðun.
18:30 Veislumatur
20:00 Kvöldvaka. Ótrúlega skemmtileg!
21: 15 Kirkjan opin!
21: 30 Kvöldkaffi og lifandi tónlist Helga Rut Guðmundsdóttir, lektor í tónmennt við H.Í.

Sunnudagur 28. febrúar

09:00 Vakið
09:00-10:00 Morgunmatur
11:00 Guðsþjónusta í kirkjunni í umsjón Ragnhildar Ásgeirsdóttur, djákna og kennara.
12:15 Hádegismatur
13:30 Heimferð

Verð

8000 krónur á mann 14 ára og eldri.
5500 krónur á mann 6-13 ára
Frítt fyrir börn á leikskólaaldri
Innifalið: gisting, dagskrá og fullt fæði.
Nánari upplýsingar og bókanir á
www.kfum.is og í síma 588 8899

Stjórnandi: Hjördís Kristinsdóttir
Tónlist: Helga Rut Guðmundsdóttir
Matráður: Sólrún Ásta Steinsdóttir

Nauðsynlegur farangur:
Sæng/svefnpoki, koddi lak, regnföt, úlpa, stígvél/gönguskór, nærföt, sokkar, peysur, trefill, húfa, vettlingar, buxur, handklæði, sápa, tannbursti, tannkrem, inniíþróttaskór.

Aðrar upplýsingar:

Vindáshlíð er æskulýðsmiðstöð KFUM og KFUK, staðsett í Kjós í um 45 km aksturfjarlægð frá Reykjavík.
Fundaraðstaða er fyrir 80 manns. Á neðri hæð er 100 fm salur með upphækkuðu sviði, ræðupúlti, píanói, skjávarpa og sýningartjaldi. Þar eru einnig fjögur smærri herbergi. Á aðalhæð er 70 fm matsalur sem tekur áttatíu manns í sæti. Úr matsal er innangengt í 30 fm hlýlega setustofu. Gistirými er fyrir um 100 manns.
Umhverfið býður upp á fjölbreytta útiveru, svo sem gönguferðir upp á Sandfell, að Selárfossi (Brúðarslæðu) og að Pokafossi. Einnig er hægt að fara í spennandi skógarleiki, ratleiki og réttarleik.
Stutt er í skíðasvæðið við Skálafell J