Fjölskylduflokkur verður haldinn í Vindáshlíð 26.-28. febrúar næstkomandi. Kærkomið fyrir allar fjölskyldugerðir að hafa það huggulegt í Vindáshlíð með sinni fjölskyldu og láta stjana við sig í mat og drykk. Hagstætt verð! Dagskrá fjölskylduflokks er eftirfarandi:

Föstudagur 26. febrúar

19:00 Kvöldmatur
20:00 Kvöldvaka í umsjón Hlíðarmeyja
21:30 Kvöldkaffi
Bænastund í kirkju í umsjón Rúnu Þráinsdóttur.
Íþróttahúsið opið

Laugardagur 27. febrúar
09:00 Vakið
09:00 – 09:55 Morgunmatur
10:00 „Heilbrigð sál í hraustum líkama“ fyrirlestur og hugleiðing í umsjón Laufeyjar Gísladóttur, kennara og einkaþjálfara.
10:00 Stund fyrir börnin í umsjón Berglindar Sigurvinsdóttur, hjúkrunarfræðings.
12:00 Hádegismatur
13:00 Frjáls tími. Möguleikar:
*Ganga Félagar úr gönguhópnum „Fúsir flakkarar“ leiða hópinn.
*Föndur Steinunn Jónsdóttir
*Íþróttahúsið opið

*Föðurímyndir í Disney teiknimyndum út frá kynjafræðinni. Nanna Björk *Rúnarsdóttir kynnir niðurstöður B.A. ritgerðar.
* Skíði í Skálafelli ef veður leyfir.

15:00 Kaffitími
15:30 Brennó í umsjón Steinunnar Jónsdóttir
Undirbúningur fyrir kvöldvöku
Afslöppun
Veisluförðun: Kamilla Hildur Gísladóttir, förðunarfræðingur, sýnir nýjustu strauma og stefnur í förðun.
18:30 Veislumatur
20:00 Kvöldvaka. Ótrúlega skemmtileg!
21: 15 Kirkjan opin!
21: 30 Kvöldkaffi og lifandi tónlist Helga Rut Guðmundsdóttir, lektor í tónmennt við H.Í.

Sunnudagur 28. febrúar
09:00 Vakið
09:00-10:00 Morgunmatur
11:00 Guðsþjónusta í kirkjunni í umsjón Ragnhildar Ásgeirsdóttur, djákna og kennara.
12:15 Hádegismatur
13:30 Heimferð

Verð
8000 krónur á mann 14 ára og eldri.
5500 krónur á mann 6-13 ára
Frítt fyrir börn á leikskólaaldri
Innifalið: gisting, dagskrá og fullt fæði.

Nánari upplýsingar og bókanir á
www.kfum.is og í síma 588 8899

Stjórnandi: Hjördís Kristinsdóttir
Tónlist: Helga Rut Guðmundsdóttir
Matráður: Sólrún Ásta Steinsdóttir

Nauðsynlegur farangur:
Sæng/svefnpoki, koddi lak, regnföt, úlpa, stígvél/gönguskór, nærföt, sokkar, peysur, trefill, húfa, vettlingar, buxur, handklæði, sápa, tannbursti, tannkrem, inniíþróttaskór.
Aðrar upplýsingar:
Vindáshlíð er æskulýðsmiðstöð KFUM og KFUK, staðsett í Kjós í um 45 km aksturfjarlægð frá Reykjavík.
Fundaraðstaða er fyrir 80 manns. Á neðri hæð er 100 fm salur með upphækkuðu sviði, ræðupúlti, píanói, skjávarpa og sýningartjaldi. Þar eru einnig fjögur smærri herbergi. Á aðalhæð er 70 fm matsalur sem tekur áttatíu manns í sæti. Úr matsal er innangengt í 30 fm hlýlega setustofu. Gistirými er fyrir um 100 manns.
Umhverfið býður upp á fjölbreytta útiveru, svo sem gönguferðir upp á Sandfell, að Selárfossi (Brúðarslæðu) og að Pokafossi. Einnig er hægt að fara í spennandi skógarleiki, ratleiki og réttarleik.
Stutt er í skíðasvæðið við Skálafell!