Laugardaginn 11. desember 2010 kl. 11.00-15.00 verður árleg jólatréssala í Vindáshlíð. Þá gefst fólki kostur á að koma í Vindáshlíð og fella sitt eigið jólatré. Verð á jólatrjám er kr. 4000. óháð stærð. Mikilvægt er að taka með sér góða sög. Um klukkan 13.00 verður hátíðleg jólastund í Hallgrímskirkju í Vindáshlíð í umsjón Lilju Írenu Guðnadóttur og Rúnu Þráinsdóttur. Í matskála verður boðið upp á heitt súkkulaði, piparkökur og kanilsnúða á vægu verði. Tekið er við kreditkortum. Allur ágóði af sölunni rennur til áframhaldandi uppbyggingar í Vindáshlíð. Hlökkum til að sjá þig!