Fyrsti AD KFUK fundur vetrarins verður haldinn í Vindáshlíð, þriðjudagskvöldið 4. október 2011. Allar konur 18 ára og eldri eru hjartanlega velkomnar.
Rúta fer frá Holtavegi 28, kl. 18.00 í Vindáshlíð.
Dagskrá kvöldsins er eftirfarandi:
Kl. 18.00 Rútuferð frá Holtavegi 28
Kl. 19.00 Kvöldmatur í Vindáshlíð
Kl. 20.00 Kvölddagskrá.

1) Upphafsorð og bæn. Halla Gunnarsdóttir, grunnskólakennari.
2) Laufey G. Geirlaugsdóttir, söngkona syngur af sinni alkunnu snilld.
3) Centering Prayer. Sigurbjörg Þorgrímsdóttir, djáknakandidat kynnir kristna íhugun samkvæmt bænahefð sem kallast Centering Prayer.
Verð kr. 4500 með rútuferð, dagskrá og kvöldvöku.
Stjórn kvöldvöku: Halla Gunnarsdóttir.
Undirspil: Helga Rut Guðmundsdóttir og Rúna Þráinsdóttir.
Skrá þarf þátttöku á fundinn. Hægt er að ganga frá skráningu í Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK í síma 5888899 eða á
www.skraning.kfum.is