Varðeldur í VindáshlíðÁ morgun fimmtudaginn 1. mars rennur út umsóknarfrestur um störf í sumarbúðum og leikjanámskeiðum KFUM og KFUK á komandi sumri. En á hverju sumri ræður KFUM og KFUK á annað hundrað ungmenni til starfa í sumarbúðum, á leikjanámskeiðum og á þjónustumiðstöð félagsins.

Spennandi, gefandi og fjölbreytt sumarstörf eru í boði í Kaldárseli, Ölveri, Vatnaskógi, Hólavatni og Vindáshlíð og á leikjanámskeiðum. Þeir umsækjendur sem fá vinnu samþykkja að sækja námskeið fyrir starfsfólk sumarbúða. Námskeiðin eru nauðsynleg forsenda þess að starfa í sumarbúðum KFUM og KFUK. Fyrir þá sem hafa áður starfað í sumarbúðum KFUM og KFUK er mikilvægt að sækja slík námskeið árlega.

Öllum er frjálst að sækja um. Þeir sem sækja um þurfa að skrifa undir að þeir samþykki að það megi óska eftir fullu sakavottorði þeirra hjá sakaskrá ríkisins. Það er skilyrði fyrir ráðningu að umsækjandi samþykki það.

Einungis er hægt að sækja um störf með rafrænum hætti og umsóknarfrestur rennur út á morgun fimmtudaginn 1. mars eins og áður sagði.

Nánari upplýsingar má fá hjá Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK, Holtavegi 28, Reykjavík í síma 588-8899.