Hin árlega kaffisala Vindáshlíðar verður haldin í upp í Vindáshlíð í Kjós, sunnudaginn 3. júní kl. 14.00-18.00. Að venju verður boðið upp á stórkostlegt kaffihlaðborð. Verð kr. 1500 fyrir 14 ára og eldri og 750 kr. fyrir 6-13 ára.

Kaffisalan hefst á messu kl. 14.00 í Hallgrímskirkju í Vindáshlíð og mun sr. Íris Kristjánsdóttir messa. Íþróttahúsið verður opið, aparólan sívinsæla verður á sínum stað, hægt er að skoða staðinn að utan sem innan, kanna íþróttahúsið, spila jafnvel brennóleik eða skoða göngustíga og rjóður í grenndinni. Takið frá sunnudaginn fyrir skemmtilegan sunnudagsbíltúr!

Allir eru hjartanlega velkomnir.