Stjórn Vindáshlíðar býður allar konur velkomnar á fyrsta AD KFUK fund vetrarins sem verður í Vindáshlíð þriðjudaginn 2. október. Rúta fer frá húsi KFUM og KFUK við Holtaveg 28, kl. 18:00 og er áætluð heimkoma um kl. 23.

Við komuna í Vindáshlíð verður boðið upp á góðan kvöldverð og að honum loknum  hefst kvöldvaka með léttu sniði. Auður Pálsdóttir, formaður KFUM og KFUK á Íslandi, flytur hugvekju kvöldsins. Kristín Sveinsdóttir mun syngja nokkur lög við undirleik frá Arnbjörgu. Matur, dagskrá og rútuferðir kosta kr. 5.000.

Vinsamlegast skráið þátttöku ykkar í Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK í síma 588-8899 eða á veffanginu: skraning.kfum.is í síðasta lagi mánudaginn 1. október.

Allar konur hjartanlega velkomnar.