Laugardaginn 8. desember 2012 kl. 11.00-15.00 verður haldin hin árlega jólatréssala í Vindáshlíð. Þá gefst fólki tækifæri til að koma í Vindáshlíð og fella sitt eigið jólatré. Verð á jólatrjám er kr. 4000 óháð stærð. Gott er að taka með sér góða sög.

Í matskála verður boðið upp á heitt súkkulaði, kaffi, piparkökur og kleinur á vægu verði. Klukkan 13.00 verður stutt jólastund í setustofunni.

Allur ágóði af sölunni rennur í viðhaldssjóð Vindáshlíðar (eldri skála). Tekið er við kreditkortum.

Hlökkum til að sjá þig í jólaskapi.