Hin árlega kaffisala Vindáshlíðar verður haldin í Vindáshlíð í Kjós, sunnudaginn 2. júní kl. 14:00-17:00. Að venju verður boðið upp á stórkostlegt kaffihlaðborð. Verð kr. 1500 fyrir 14 ára og eldri og kr. 750 fyrir 6-13 ára.
Kaffisalan hefst á messu kl. 14:00 í Hallgrímskirkju í Vindáshlíð og mun  sr. Einar Sigurbjörnsson og sr. Guðrún Edda Gunnarsdóttir sjá um hana. Íþróttahúsið verður opið, hægt er að skoða staðinn að utan sem innan, spila jafnvel brennóleik eða skoða göngustíga og rjóður í grenndinni.

Takið sunnudaginn 2. júní frá fyrir skemmtilegan sunnudagsbíltúr!
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Vindáshlíð