Mæðgnaflokkur verður haldin í Vindáshlíð helgina 20.-22.sept fyrir allar mæðgur á aldrinum 6-99 ára.

Flokkurinn er skipulagður í anda Vindáshlíðarflokkanna sem eru á sumrin og því kjörið tækifæri fyrir mæðgur að fara saman og upplifa sumarbúðastemmninguna.  Verð er 11.900 kr. á mann með gistingu, dagskrá og fullu fæði. Farið verður á einkabílum í Vindáshlíð.

Hægt er að ganga frá skráningu hjá Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK í síma 588-8899 eða með því að smella hér.

Sumarbúðagleði 2013

Í ár eru það Anna Arnarsdóttir sem sér um stjórnun og Steinunni og Maríu Jónsdætur sem sjá um matinn.

Dagskrá helgarinnar:

Föstudagur 20. september
18.30 Mæting og skráning í herbergi.
19.00 Kvöldmatur
20.00 Kvöldvaka, Vindáshlíðarlög samhristingur, grín og glens.
21:00 Spilastund
22:00 Kaffi og kósý
22:30 – Yngri stelpur fara að sofa, eldri stelpur fara í partý í íþróttahúsinu.
22.30 Mömmukaffi og kósý í setustofu og matsal
Laugardagur 21. september
9.30 Morgunmatur
10.00 Mæðgnamorgunbíó og spjall á eftir
12.00 Hádegismatur
13:00 Brennókeppni kynslóðanna – hverjar eru betri í brennó? Mömmur eða stelpur?
14:00 Frjáls tími, margt í boði:
o    Origami-föndur Lærum að brjóta saman pappír til að úr verði fugl
o    Spil
o    Frjálsar gönguferðir um svæðið (skylda að hafa einhvern fullorðinn með í för)
o    undirbúningur fyrir helgistund morgundagsins
o    Frjáls leikur úti eða inni
o    Blundartími
o    Handavinna að heiman
o    eða hvað annað sem fólki dettur spennandi í hug
15.30 Kaffi
16.00 Undirbúningur fyrir kvöldvöku/áframhaldandi spil og afslöppun
19.00 Veislukvöldverður
20.30 Kvöldvaka í umsjá herbergja
21.30 Kvöldkaffi
22.00 Hugleiðing
22:30 Svefn fyrir þær yngstu, bíó fyrir unglingana og meira kaffi og kósý fyrir mömmur

Sunnudagur 22. september
9.30 Morgunmatur
11.00 Minningagerð
12.00 Hádegismatur
13.30 Helgistund í Hallgrímskirkju
Heimferð

Eftirfarandi upptalning gefur hugmynd um farangur:
Sæng eða svefnpoki, koddi, lak, náttföt, regnföt, úlpa, stígvél, íþróttaskór, inniskór, lítill bakpoki og vatnsbrúsi f. lengri gönguferðir, inniíþróttaskór, nærföt, nægir sokkar, peysur, trefill, húfa, vettlingar, buxur, betri fatnaður, ullarpeysa, handklæði, sápa, tannbursti, tannkrem, Biblían, myndavél.