AD KFUK

Stjórn Vindáshlíðar býður allar konur velkomnar á fyrsta AD KFUK fund vetrarins sem verður í Vindáshlíð þriðjudaginn 1. október. Rúta fer frá húsi KFUM og KFUK við Holtaveg 28, kl. 18:00 og er áætluð heimkoma um kl. 23.

Við komuna í Vindáshlíð verður boðið upp á góðan kvöldverð og að honum loknum  hefst kvöldvaka með léttu sniði. sr. Elínborg Sturludóttir flytur hugvekju kvöldsins: „Á vegferð til einfaldara, innihaldsríkara og „grænna“ lífs.“ -Nokkur orð um kristna trú og græna guðfræði.
Matur, dagskrá og rútuferðir kosta kr. 5.000.

Vinsamlegast skráið þátttöku ykkar í Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK í síma 588-8899 eða á veffanginu: skraning.kfum.is í síðasta lagi mánudaginn 30. september.

Allar konur hjartanlega velkomnar.