Þá er upp runninn heimferðardagur.  Stúlkurnar vöknuðu kl. 9 og eru nú í óða önn að ganga frá dótinu sínu í töskur.

Þá spila brennómeistarar Barmahlíðar við foringjana síðasta brennóleikinn í þessum flokki.  Við munum svo að loknum hádegisverði hafa stutta stund í kirkjunni okkar og endum svo á ratleik áður en rúturnar koma.

Það hefur verið einstök ánægja að vera treyst fyrir þessum frábæru stelpum sem hér hafa dvalið undanfarna fimm daga.  Við þökkum fyrir lánið á þeim.

Bestu kveðjur

Halla Gunnarsdóttir og Hjördís Kristinsdóttir forstöðukonur í 8. flokki