Árshátíð Hlíðarmeyja verður haldin í starfsstöðvum KFUM og KFUK að Holtavegi 28, sunnudaginn 9. febrúar kl. 13–14:30. Þangað eru allar stelpur sem dvöldu í Hlíðinni sl. sumar hjartanlega velkomnar. Að venju verður mikið fjör, foringjar frá liðnu sumri sjá um skemmtidagskrá í sönnumVindáshlíðaranda. Hlíðarsöngvar sungnir og boðið verður upp á léttar veitingar. Ekki má gleyma happdrættinu, en meðal vinninga er dvöl í Vindáshlíð sumarið 2020.

Verð á árshátíðina er 500 kr.

Hlökkum til að sjá ykkur!