Í dag komu 80 hressar stelpur í hlíðina til okkar. Eftir að stelpurnar fengu að vita herbergin sín og koma sér fyrir var hádegismatur í matinn var kjúlli og franskar. Eftir hádegi var dálítill frjáls tími þar sem stelpurnar tóku sig saman og fóru í einn stórann löggu og bófa leik um húsið. Næst á dagskránni er útivera og í henni fóru stelpurnar í ratleikinn Amazing Race. Eftir útiveruna tók við Kaffi og fengu þær dýrindis súkkulaði köku. Næst tóku við íþróttakeppnir og brennó leikir fram að kvöldmat. Í matinn var rjómapasta og stelpurnar kvörtuðu ekki við því. Næst er komið að kvöldvöku og í kvöld fóru þær allar niður í Íþróttahús í hópleiki. Þær komu allar mjög þreyttar til baka og fengu smá kvöldsnarl og fóru svo í hugleiðingu þar sem við enduðum frábærann fyrsta dag saman hér í Vindáshlíð.

Hlökkum til næstu daga 🙂

 

Kveðja

Andrea Forstöðukona.