Í ár verður boðið upp á tvo jólaflokka í Vindáshlíð sem munu svo sannarlega koma stelpunum í hátíðarskap!

Fyrsti flokkurinn (10-12 ára) verður haldin helgina 27.-29. nóvember, og seinni flokkurinn (12-14 ára) verður haldin helgina 11.-13. desember.

Það verður mikil jólastemning í hlíðinni með skreytingum, bakstri, hugleiðingum, og stútfullri dagskrá í anda jólanna!

Verð í flokkinn er 19.800 kr. og er rúta innifalin í verðinu.
Skráning fer fram á https://www.sumarfjor.is/Event.aspx?id=3

Hlökkum til að fagna aðventunni saman í hlíðinni fríðu!