Í dag vöknuðu stelpurnar eldhressar enda er veisludagur í dag svo spennan var mikil. Í morgunmat fengum við morgunkorn og svo var hafragrautur fyrir þær sem vildu. Síðan var haldið að fánahyllingu og svo morgunstund með forstöðukonu þar sem við lærðum um að við erum dýrmæt sköpun Guðs og við erum frábærar eins og við erum. Eftir morgunmat var loksins komið að því að keppa í úrslitum í brennómótinu. Það var mikið stuð og spennan var í hámarki. Það voru svo Gljúfrahlíð sem stóðu uppi sem brennómeistarar 1.flokks 2021.

Í hádegismatinn var plokkfiskur og rúgbrauð sem stelpurnar voru mjög hrifnar af. Eftir hádegismat fengu stelpurnar svo að velja á milli fjögura svokallaðra kirkjuhópa til að skrá sig í til að undirbúa messuna sem yrði seinna um daginn. Þær gátu valið á milli þess að fara í leiklistarhóp, sönghóp, skreytingarrhóp og bæna og undirrbúningshóps. Stelpunum skemmtu sér gríðarlega vel og var mikið stuð í öllum hópunum. Eftir hópastarfið fórum við aðeins út að leika okkur í góða veðrinu enda var veðrið alveg yndislegt hjá okkur í dag.

Í kaffitímanum fengu stelpurnar köku og brauð en eftir kaffið var komið að hinum sí vinsæla vinagangi. En vinagangur er hef hér í Vindáshlíð á veisludegi en þá mega stelpurnar bjóða upp á eitthvað skemmtilegt inn í sínu herbergi og bjóða öðrum stelpum og foringjum að kíkja í heimsókn. Vinsælast var að bjóða upp á hárgreiðslu, bangsapössun og nudd en svo var alskonar annað líka í boði. Um klukkan hálf sex voru stelpurnar allar orðnar fínar og sætar fyrir Veislukvöldið sem framundan var. Við byrjuðum á að fara í kirkjuna þar sem að við áttum notalega stund saman. Við lærðum um það að bera virðingu fyrir náunganum og vera góð manneskja því þá líður manni svo miklu betur. Að messu lokinni var komið að veislukvöldmat þar sem að við fengum pizzu í kvöldmat. Það var sko heldur betur borðað vel af henni. Næst tók veislukvöldvakan við sem er oft hápunktur vikunnar hjá sumum stelpum en þá stíga foringjarnir á svið og eru með leikrit og mikið hlegið. Í hugleiðingunni fengu svo stúlkurnar íspinna og lærðu um þakklæti og hvað það er sem við getum þakkað fyrir á hverjum degi.

Það voru því mjög þreyttar stelpur sem sofnuðu hér í kvöld eftir viðburðarríkan dag. Á morgun fer rútan frá Vindáshlíð kl 14:00 og verður því komin upp á Holtaveg 28 um klukkan 15:00. Þau ykkar sem að eigið börn sem ekki eru skráð í rútu verðið því að vera komin upp í Vindáshlíð að sækja dömurnar ekki seinna en 14:00. Endinlega látið mig vita ef þið ætlið að sækja dömurnar ykkar, ef ég veit ekki af því nú þegar, svo að farangurinn lendi ekki óvart inn í rútunni. Það er hægt að hafa samband við mig á símatíma á morgun milli 11:30 og 12:00 í síma 566-7044.

Seinast en ekki síst minni ég enn og aftur á bæði instagram Vindáshlíðar og myndir úr flokknum á eftirfarrandi slóð: https://www.flickr.com/photos/kfum-kfuk-island/albums/72157719395541144

Við í Vindáshlíð erum mjög þakklátar fyrir að hafa fengið að kynnast þessum frábæru stelpum og vonumst til að sjá sem flestar aftur í Hlíðinni.

Sjáumst á Holtavegi á morgun rétt fyrir 15:00 🙂

Bestu kveðjur,
Elísa Sif forstöðukona