Í gær mættu yndislegar og fjörugar 83 stúlkur í Vindáshlíð. Það voru mjög margar að koma í fyrsta skiptið svo það var mikill spenningur í loftinu þegar að rútan keyrði að Vindáshlíð. Eftir að búið var að kynna allar reglurnar okkar hér í Vindáshlíð þá var haldið inn í herbergin sem að stúlkurnar munu dvelja í næstu daga og þær komu sér vel fyrir og byrjuðu að kynnast öllum nýju vinkonum sínum.

Ásamt því þá kynntust þær líka bænakonunni sinni, en hvert og eitt herbergi fær sína bænakonu úr foringjahópnum sem fylgir herberginu í gegnum flokkinn.

Þegar búið var að koma sér fyrir var komið að hádegismat. Í hádegismatinn var ljúfengur grjónagrautur sem að sjálfsögðu sló í gegn. Eftir mat var komið að útiveru og þar sem að sólin skein

svona fallega á okkur að þá ákváðum við að drífa okkur í smá göngutúr að brúðarslæðu, en það er lækur hér í nágrenni Vindáshlíðar. Þar fengu stelpurnar að vaða og bursla og skemmta sér. Í kaffinu var svo boðið upp á súkkulaðiköku og smákökur. Eftir kaffi var síðan farið af stað með hina sívinsælu brennókeppni þar sem herbergin keppast sín á milli og mun eitt herbergi standa uppi sem brennómeistarar 7.flokks 2022. Einnig hófst íþróttakeppnin, föndurherbergið var opið og eins voru vinaböndin á sínum stað en þau eru alltaf vinsæl.

Í kvöldmat var steiktur fiskur með ljúfengum frönskum áður en haldið var á kvöldvöku. Í kvöldvöku var farið í ratleik um svæðið þar sem stelpurnar fengu að kynnast Vindáshlíð betur og leystu ýmsar þrautir saman sem herbergi. Seinast en ekki síst var komið að kvöldkaffi og svo loks hugleiðingu þar sem að þær fengu að heyra yndislega sögu um þakklæti. Bænakonurnar enduðu svo daginn með hverju herbergi. Ekki leið að löngu þar til það var komin ró í húsið og allar steinsofnaðar enda vel þreyttar eftir frábæran dag.

Þetta er alveg dásamlegur stúlknahópur. Fjörugar, glaðar og flottar og okkur hlakkar mikið til að fá að kynnast þeim enþá betur hér í 7. flokki.

Ég minni á að foreldrar og forsjáraðilar geta haft samband við forstöðukonu alla daga milli 11:30 og 12:00 í síma  566-7044. Það er velkomið að hringja og spyrjast frétta af stelpunum en ég minni einnig á instagram síðu Vindáshlíðar (@vindashlid) en við ætlum að reyna að posta þar í story.

Við byrjum í dag að setja inn myndir á eftirfarandi slóð: Myndir

Hlýjar kveðjur,

Elísa Sif forstöðukona