Það var sko heldur betur gaman hjá okkur á veislukvöldi hér í Jólaflokki í Vindáshlíð. En eftir kaffitíma héldu allar stelpurnar inn í herbergin sín þar sem að hvert og eitt herbergi undirbjó atriði fyrir kvöldvökuna með sinni bænakonu. Síðan var boðið upp á að hafa hinn sí vinsæla vinagang. En vinagangur er eitthvað sem að við gerum alltaf á veisludag hér í Vindáshlíð en þá mega stelpurnar bjóða upp á eitthvað skemmtilegt inn í sínu herbergi og bjóða öðrum stelpum og foringjum að kíkja í heimsókn. Vinsælast var að bjóða upp á hárgreiðslu, bangsapössun og nudd en svo var allskonar annað líka í boði.

Rétt fyrir klukkan 18:00 fóru allar stelpurnar upp í Hallgrímskirkjuna okkar hér í Vindáshlíð þar sem að við vorum með okkar eigin jólamessu. Þar sungum við saman róleg og falleg jólalög og heyrðum söguna um fæðingu Jesú. Eftir kirkjuna var komið að jólamatnum og ilmurinn í Hlíðinni varð alveg hreint dásamlegur. Eftir kvöldmat var komið að kvöldvökunni en þar fengu öll herbergin að spreyta sig og leika listir sínar á sviði.

Þegar að kvöldvöku var lokið fóru stelpurnar í náttföt og héldu inn á hugleiðingu. Þegar að hugleiðingin var aðeins byrjuð hoppuðu foringjarnir fram syngjandi „hæ hó jibbý  jei það er komið náttfatapartý“ og jóla-náttfatapartýið byrjaði. Þar fengu stelpurnar að syngja og dansa upp á borðum inn í matsal við öll fjörugustu og skemmtilegustu jólalögin. Í náttfatapartýinu kíktu líka nokkrar skrautlegar en skemmtilegar verur til okkar, það voru Grinch og hans fylgdarlið. Það endaði á því að allar stelpurnar fengu ís og hlustuðu á fallega jólasögu fyrir svefninn. Bænakonurnar enduðu svo daginn með hverju herbergi fyrir sig. Það voru þreyttar en  en glaðar stelpur sem að sofnuðu eftir viðburðaríkan  dag.

Stelpurnar vöknuðu snemma í morgun og héldu í morgunmat. Eftir morgunmat var í boði að föndra meira, en þær sem vildu máttu pakka inn jólagjöfunum sínum og skrifa jólakort. Þær sem höfðu minni áhuga á föndrinu máttu fara í brennó í íþróttahúsinu eða frjálsan tíma. Í hádegismat var Möndlugrautur og var farið í þann klassíska jólaleik þar sem að allir fá grjónagraut og sú sem fær möndluna fékk pakka. Á meðan að á hádegismatnum stóð var síðan veittar viðurkenningar fyrir hinar ýmsu keppnir og þrautir sem eru búnar að eiga sér stað hérna yfir helgina eins og Jólagleðikeppnin og Leitin að Jólunum Ratleiknum.

Við enduðum helgina allar saman á smá lokastund með forstöðukonu þar sem að farið var yfir allt það dásamlega sem við gerðum saman yfir helgina. Töluðum um jóla kærleikan og sungum nokkur vel valin jólalög. Eftir lokastundina fóru stelpurnar að pakka og áttu lokastund saman sem herbergi með sinni bænakonu

Nú erum við að halda upp í rútu en hún leggur af stað héðan úr Vindáshlíð klukkan 14:00 og verðum því komnar á Holtaveg 28 rétt rúmlega 15:00.

Myndir úr flokknum verður svo hægt að finna á heimasíðunni okkar.

Ég vil enda þennan póst á því að þakka ykkur kæru foreldrar/forráðamenn fyrir það eitt að lána okkur börnin ykkar hér um helgina. Við höfum haft unun að því að vera með þeim. Þetta eru alveg frábærar, jákvæðar og skemmtilegar stelpur sem að þið eigið og við vonumst eftir því að fá að hitta þær aftur í Hlíðinni á nýju ári.

Fyrir þá sem vilja þá er hægt er að fylgjast með okkur í Vindáshlíð á bæði Instagram og Facebook. Alltaf eitthvað skemmtilegt í gangi hjá okkur.

Gleðileg jól og farsælt komandi ár frá öllum úr Vindáshlíð,

Hlýjar kveðjur,
Elísa Sif Hermannsdóttir
Forstöðukona