Í gær mættu dásamlegar og fjörugar 84 stelpur í Vindáshlíð. Það voru mjög margar búnar að koma áður og vissu því við hverju átti að búast, en 7.flokkur er Ævintýraflokkur og því verða mikið af skemmtilegum ævintýrum hjá okkur þessa vikuna sem þær biðu spenntar eftir. Eftir að búið var að kynna allar reglurnar hér í Vindáshlíð fóru stelpurnar í herbergin sín sem að þær dvelja í næstu daga. Margar eru að deila herbergjum með stelpum sem að þær þekktu ekki áður en að þær komu í Vindáshlíð svo að þær byrjuðu um leið að kynnast öllum nýju vinkonum sínum.

Þegar að búið var að koma sér fyrir var komið að kaffitíma en þar var á boðstólum hin vinsæla jógúrtkaka sem að öllum finnst svo góð hér í Vindáshlíð og sérstaklega núna því að hún kom en þá heit á borðið til stelpnanna. Eftir kaffi var síðan komið að frjálsum tíma en í honum hófust  íþróttakeppnirnar þar sem stelpurnar keppa sín á milli í fjörugum og skemmtilegum keppnum í gegnum flokkinn en eins var líka íþróttahúsið og föndurherbergið opið og eins voru vinaböndin á sínum stað í setustofunni.

Í kvöldmat var Grjónagrautur sem að sjálfsögðu sló í gegn. Eftir kvöldmat var svo komið að fyrstu kvöldvökunni en þar var farið í Amazing Race ratleik um svæðið þar sem að herbergin unnu saman að því að safna stigum á víð og dreif í Hlíðinni. Eftir kvöldvöku var haldið í kvöldkaffi þar sem boðið var upp á ávexti og kex og loks á hugleiðingu. Á hverju kvöldið í Vindáshlíð er hugleiðing þar sem að foringi segir fallega sögu, við syngjum saman róleg lög og þökkum fyrir daginn.

Eftir hugleiðingu var í boði að tannbursta sig í læknum okkar sem er einmitt kallaður tannburstalækur því að í mörg ár hafa stelpur fengið að tannbursta sig þar og því gömul og góð hefð en einnig skemmtileg hefð. Svo var komið að því sem að stelpurnar biðu spenntar eftir allan daginn en það var bænakonuleitin. En hvert og eitt herbergi fær sína bænakonu úr foringjahópnum sem fylgir herberginu í gegnum flokkinn. Bænakonuleitin tók mislangan tíma hjá öllum herbergjunum en að lokum fundu öll herbergin sína bænakonu. Þær enduðu svo daginn með stelpunum og ekki leið að löngu þar til það var komin ró í húsið og allar steinsofnaðar enda vel þreyttar eftir frábæran dag.

Þetta er alveg dásamlegur stúlknahópur. Fjörugar, glaðar og flottar og okkur hlakkar mikið til að fá að kynnast þeim en þá betur hér í 7. flokki.

Ég minni á að foreldrar og forsjáraðilar geta haft samband við forstöðukonu alla daga milli 11:30 og 12:00 í síma  566-7044. Það er velkomið að hringja og spyrjast frétta af stelpunum en annars ætlum við að vera dugleg að setja inn bæði myndir og fréttir hér á Vindashlid.is.  Að gefnu tilefni minni einnig á instagram síðu Vindáshlíðar (@vindashlid)

Myndir úr flokknum er hægt að finna á eftirfarandi slóð: Myndir

Hlýjar kveðjur,

Elísa Sif forstöðukona