Í gær vöknuðu stelpurnar eldhressar og heldur betur til í daginn. Þær byrjuðu að sjálfsögðu á því að fá sér morgunmat þar sem var að vana boðið upp á morgunkorn og súrmjólk eða mjólk með en svo var hafragrautur líka í boði fyrir þær sem vildu. Eftir morgunmat var fánahylling og morgunstund með forstöðukonu á sínum stað. Í morgunstundinni ræddum við saman um það að við erum allar með okkar eigin tilfinningafötu og stundum er hún full og þá líður okkur ekki endilega mjög vel. Hún á það líka til að flæða upp úr og þess vegna er svo gott að vera góð hvor við aðra en eins að vera góð við okkur sjálfar og hlúa vel að okkur öllum. Að sjálfsögðu sungum við líka helling af söngvum saman því að það er svo gott að byrja daginn á því að syngja. Eftir þessa dásamlegu stund saman að þá var  komið enn og aftur að frjálsum tíma með brennói, íþróttum og fleira.

Í hádegismat var boðið upp á plokkfisk með rúgbrauði. Þegar að kom að útiveru fóru stelpurnar í hin vinsæla og skemmtilega leik Flóttinn úr Vindáshlíð. Flóttinn gengur út á það að foringjarnir eru allir orðnir veikir af foringjabólunni og því er best að stelpurnar flýi undan þeim, en markmið leiksins var að vera ekki fangaður í fangelsi og finna griðastað með hjálp vísbendinga út um svæðið.

Að lokinni útiveru var komið að kaffitíma en að þessu sinni var boðið upp á skúffuköku og kryddbrauð sem að sjálfsögðu sló í gegn. Síðan var aftur haldið í frjálsan tíma með brennó, íþróttum og öllu tilheyrandi. Í kvöldmatinn var svo boðið upp á kjötbollur með kartöflumús áður en haldið var á kvöldvöku kvöldsins. Að þessu sinni var boðið upp á Hlíðar-Bíó þar sem bíómyndin She’s the Man var sýnd og allir fengu popp og höfðu það notalegt. Við enduðum svo daginn á því að fara í kvöldkaffi og hugleiðingu en þar var talað um það að Jesú er alltaf með okkur, jafnvel þótt við vitum ekki af því að þá stendur hann við bakið á okkur sama hvað bjátar á.

Þegar að stelpurnar voru komnar í náttföt og voru á leið upp í rúm komu foringjarnir þeim að óvörum og sungu: „hæ hó jibbý jei og jibbý og jei það er komið náttfatapartý“. Stelpurnar voru ekkert smá ánægðar með náttfatapartýið og var mikið hlegið og brosað. Við dönsuðum uppi á borðum, fórum í leiki en svo kíktu líka nokkrir skemmtilegir gestir til okkar og glöddu stelpurnar, það voru var þáttastjórnandinn Siggi sem að stjórnaði þætti af Djúpu Lauginni þar sem keppendurnir Lúlli listamaður, Bjarnfreðinn bóndasonur og Ólafur Ragnar kepptust um að heilla hana Berglindi eða Queen B eins og hún er víst oftast kölluð. Þetta vakti mikla lukku og hlátur og stóð bóndasonurinn uppi sem sigurvegari. Bóndasonurinn fékk svo frostpinna í verðlaun en ákvað að gefa stelpunum með sér við góðar undirtektir.

Það fóru því vel þreyttar er hrikalega glaðar stelpur á koddann hér í Hlíðinni í kvöld.

Ég minni enn og aftur á það að hægt er að nálgast myndir úr flokknum hér: Myndir

Hlýjar kveðjur,

Elísa Sif forstöðukona