Í gær vöknuðu stelpurnar mjög hressar og kátar enda spenntar fyrir fyrsta heila deginum sínum hér í Hlíðinni. Þar sem að þetta er ævintýraflokkur voru stelpurnar að þessu sinni vaktar og sáu að búið var að skreyta bæði gangana og matsalinn hátt og lágt með myndum og skreytingum af allskonar frægu fólki og voru fljótar að taka eftir að allir foringjarnir voru klæddir eins og einhver frægur. Hér var að sjá Herra Hnetusmjör, Justin Bieber, Ice Guys og svo mikið fleiri.

Í morgunmat var í boði að fá sé morgunkorn með mjólk eða súrmjólk. Eftir morgunmat er hefð fyrir því hér í Vindáshlíð að halda út að fánastöng en þar er fánahylling á hverjum morgni. Eftir fánahyllingu var svo haldið niður í kvöldvökusal á morgunstund með forstöðukonu. Í framhaldi af því byrjaði hin æsispennandi brennókeppni hér í Vindáshlíð þar sem herbergin keppast sín á milli og mun eitt herbergi standa uppi sem brennómeistarar 4.flokks 2024. Ásamt brennóinu var auðvitað í boði að taka þátt í íþróttakeppnum, fara í föndur, gera vinabönd eða annan frjálsan leik.

Í hádegismat var svo boðið upp á kjúklingaborgara og franskar áður en haldið var í útiveru sem að þessu sinni var innivera þar sem að veðrið var aðeins að stríða okkur með rigningu. Haldið var út í íþróttahús þar sem farið var í leikinn Vindáshlíð Top Model, í þeim leik fær hvert og eitt herbergi svartan ruslapoka sem að þær hanna svo sem einhverskonar flík á eina stelpur í herberginu sem tekur að sér að vera módelið. Í lokin er svo tískusýning þar sem að stelpurnar sýna hönnunina sína. Eftir útiveru var Telma bakari búin að baka möndluköku og amerískar súkkulaðibitakökur. Eftir kaffi var svo enn og aftur frjáls tími þar sem keppt var í brennó og íþróttum eða haft það notalegt fyrir þær sem vildu.

 

Í kvöldmat voru kjötbollur með brúnni sósu og kartöflumús en svo tók kvöldvakan við, en að þessu sinni fóru stelpurnar í leikinn Capture the Flag. Þar er stúlknahópnum skipt upp í tvö lið og eiga þau að reyna að vinna að því í sameiningu að ná fánanum hjá hvort öðru, stelpurnar skemmtu sér konunglega og var gleðin mikil. Að lokinni kvöldvöku var komið að því að róa hópin aðeins niður og því haldið í kvöldkaffi og loks hugleiðingu. Að þessu sinni fengu stelpurnar að heyra sögu um hvað jákvætt og gott hugarfar kemur okkur langt.

Eftir hugleiðingu var í boði að fara út í tannburstalæk og bursta tennurnar fyrir þær sem vildu. Bænakonurnar enduðu svo daginn með sínu herbergi og fóru því þreyttar en glaðar stelpur að sofa hér í gærkvöldi.

Ég minni enn og aftur á myndirnar sem hægt er að finna hér: Myndir

Bestu kveðjur úr Hlíðinni,
Elísa Sif forstöðukona