Í gær vöknuðu stelpurnar mjög hressar og kátar enda spenntar fyrir fyrsta heila deginum sínum hér í Hlíðinni. Þar sem að þetta er ævintýraflokkur voru stelpurnar að þessu sinni vaktar með jólalögum og búið var að skreyta alla Hlíðina hátt og lágt með jólaskreytingum. Foringjarnir voru allir klæddir í jólaföt og sögðu endalaust gleðileg jól og svo var einnig Grinch mættur á svæðið. Jólalögin ómuðu um gangana sem var skemmtilega skrýtið.

Í morgunmat var í boði að fá sé morgunkorn með mjólk eða súrmjólk. Eftir morgunmat er hefð fyrir því hér í Vindáshlíð að halda út að fánastöng en þar er fánahylling á hverjum morgni. Eftir fánahyllingu var svo haldið niður í kvöldvökusal á morgunstund með forstöðukonu. Í framhaldi af því byrjaði hin æsispennandi brennókeppni hér í Vindáshlíð þar sem herbergin keppast sín á milli og mun eitt herbergi standa uppi sem brennómeistarar 7.flokks 2024. Ásamt brennóinu var auðvitað í boði að taka þátt í íþróttakeppnum, fara og gera allskonar jólaföndur í föndurherberginu, gera vinabönd eða annan frjálsan leik.

Í hádegismat var svo boðið upp á kjúklingaborgara og franskar áður en haldið var í útiveru. Að þessu sinni var farið í göngu niður að réttum sem eru hér í grennd við Vindáshlíð en þar var farið í réttarleikinn þar sem að stelpurnar eru kindurnar og foringjarnir eru bændurnir að elta þær og setja þær í dilka eftir t.d. lit á úlpu eða álíka.  Eftir útiveru var búið að baka smákökur og kanillengjur svona í anda jólanna. Eftir kaffi var svo enn og aftur frjáls tími þar sem keppt var í brennó og íþróttum eða haft það notalegt fyrir þær sem vildu.

Í kvöldmat voru kjötbollur með brúnni sósu og kartöflumús en svo tók kvöldvakan við, en að þessu sinni var farið í leikinn Viltu vinna milljón spurningakeppni sem var æsispennandi og ein stúlka sem stóð uppi sem sigurvegari leiksins.  Að lokinni kvöldvöku var komið að því að róa hópin aðeins niður og því haldið í kvöldkaffi og loks hugleiðingu. Að þessu sinni fengu stelpurnar að heyra sögu um bænina sem fjallaði um að hugsa ekki bara um sjálfan sig heldur líka um alla hina.

Eftir hugleiðingu var í boði að fara út í tannburstalæk og bursta tennurnar fyrir þær sem vildu. Bænakonurnar enduðu svo daginn með sínu herbergi og fóru því þreyttar en glaðar stelpur að sofa hér í gærkvöldi.

Ég minni enn og aftur á myndirnar sem hægt er að finna hér: Myndir

Bestu kveðjur úr Hlíðinni,
Elísa Sif forstöðukona