Í gær lögðu af stað um 45 hressar stelpur hingað upp í Vindáshlíð. Það var búið að skreyta hlíðina hátt og lágt og því ekkert annað í boði en að komast í jólaskap þessa helgi. Við vorum komnar upp í Vindáshlíð rúmlega 18:00 og jólaandinn sveif yfir svæðið. Við byrjuðum á því að fara yfir nokkrar reglur en svo fengu stelpurnar að vita í hvaða herbergjum þær ættu að vera í yfir helgina en herbergin þessa helgina heita ekki sínum hefðbundnu nöfnum, heldur heita þau skemmtilegum og líflegum jólanöfnum en hér eru herbergi eins og Skellihlíð, Skyrhlíð, Kertahlíð og fleiri. Allir fá að sjálfsögðu að vera með vinkonum sínum í herbergi ásamt því að mögulega kynnast einhverjum nýjum vinkonum. Stelpurnar fengu líka bænakonu, en hvert og eitt herbergi fær alltaf sína bænakonu úr foringjahópnum sem fylgir sínu herbergi í gegnum flokkinn.
Stelpurnar komu sér fyrir í herbergjunum sínum og margar komu með jólaskraut með sér og skreyttu því herbergin sín. Svo var komið að kvöldmat en þar var boðið upp Lasagna og hvítlauksbrauð og auðvitað var vel borðað. Því næst var komið að kvöldvöku en hún var með jólalegu sniði að þessu sinni en í boði var að skera út piparkökur, fara í jólaíþróttakeppni eða brennó fyrir þær sem vildu. Jólalögin ómuðu um húsið og mikið stuð. Þegar kvöldvakan var búin var komið að kvöldkaffi þar sem boðið var upp á mandarínur og nýbakað kryddbrauð.
Til þess að ljúka deginum með stæl var haldið á hugleiðingu þar sem að þær heyrðu sögu um Jesú og af hverju hann svo frábær og eins af hverju við höldum upp á Jólin. Það var nóg hægt að ræða um það enda eru jólin bara svo dásamleg og allur kærleikurinn sem fylgir þeim. Stelpurnar enduðu svo daginn með sinni bænakonu og allir steinsofnuðu mjög fljótt eftir yndislegan dag.
Stelpurnar vöknuðu kl. 09:00 í morgun, eldhressar og tilbúnar í daginn. Þær byrjuðu á því að fá sér morgunmat en eftir morgunmat var morgunstund með forstöðukonu. Þar sungum við lög saman og heyrðu um sögu af hverju jólin kallast hátíð ljóss og friðar. Allt verður svo heilagt að þó að það sé dimmt og drungalegt úti að þá er bjart innra með okkur. Veröldin hlýnar og við fyllumst eftirvæntingu, von og trú. Þannig eru jólin. Yndisleg stund saman.
Að stundinni lokinni var haldið út í smá útiveru þar sem við fórum í ratleikinn „Leitin að Jólunum“ þar sem að stelpurnar fóru út um allt svæðið í Vindáshlíð og leystu þrautir hjá hinum ýmsu karakterum sem hægt að finna í mismunandi jólasögum. Hér var á stjá Jólakötturinn, Grinch, Grýla, María Mey og Rúdolf
Næst var komið að hádegismat en þar var á boðstólum Pizza sem að sjálfsögðu sló rækilega í gegn. Að hádegismat loknum var boðið upp á ólíkar jólastöðvar og mátti hver og ein ráða hvað hún vildi gera. Hér var boðið upp á jólaföndur, jólaíþróttakeppnir og auðvitað brennó en það er alltaf vinsælt hér í Vindáshlíð. Gleðin var mikil og mjög mikið stuð.
Eftir útiveru var komið að kaffitímanum sem er alltaf í miklu uppáhaldi hér í Vindáshlíð en á boðstólum kanillengjur og skúffukaka. Nú erum við öll á fullu að undirbúa jóla-veislukvöldið sem að verður í kvöld en meira um það síðar.
Endilega fylgist með okkur á instagram síðu Vindáshlíðar (@vindashlid) en við erum búin að setja smá í story þar. Annars eru komnar inn myndir úr flokkum og hægt er að nálgast þær hér: Myndir
Jólakveðjur,
Elísa Sif Hermannsdóttir
Forstöðukona