Það var heldur betur jólastuð hér á veislukvöld í jólaflokk í Vindáshlíð í gær. En eftir kaffitímann fóru allar stelpurnar inn í herbergin sín þar sem að hvert og eitt herbergi mátti undirbúa atriði fyrir kvöldvökuna um kvöldið. Næst var boðið upp á hinn sí vinsæla vinagang. En vinagangur er eitthvað sem að við gerum alltaf á veisludag hér í Vindáshlíð en þá mega stelpurnar bjóða upp á eitthvað skemmtilegt inni í sínu herbergi og bjóða öðrum stelpum og foringjum að kíkja í heimsókn. Vinsælast var að bjóða upp á hárgreiðslu og nudd en svo var allskonar annað líka í boði.

Rétt fyrir klukkan 18:00 hringdu kirkjuklukkurnar í Hallgrímskirkju hér í Vindáshlíð en þá fóru allar stelpurnar upp í kirkju þar sem að við vorum með okkar eigin jólamessu. Þar sungum við saman róleg og falleg jólalög og heyrðum söguna um fæðingu Jesú ásamt því var farið í gegnum aðventukransinn og hvert og eitt kerti útskýrt ásamt söng. Eftir kirkjuna var komið að jólamatnum og ilmurinn í Hlíðinni varð alveg hreint dásamlegur og alveg eins og á jólunum. Boðið var upp á bayonne skinku, kartöflur og annað meðlæti og svo fengu allar stelpurnar malt og appelsín sem vildu.

Brunabjallan ákvað svo að fara í gang strax eftir matinn þrátt fyrir að engin eldur væri í húsi. Stelpurnar stóðu sig eins og hetjur og voru fljótar að rýma húsið þrátt fyrir villu í brunakerfinu okkar. Nokkrar stelpur urðu smá skelkaðar og kannski pínulítið hræddar en það var tekið extra vel utan um þær.
Til þess að gleyma þessari brunabjöllu var farið beint í gleðina sem var kvöldvakan en þar fengu öll herbergin að vera með atriði og leika listir sínar á sviði. Þegar allar stelpurnar og foringjarnir voru búnir að gera atriði dönsuðum við í kringum jólatréð og tókum smá jóla dans partý.

Þegar að kvöldvakan og danspartýið var búið var komið að kvöldkaffinu en þar var boðið upp á heitt kakó og piparkökur sem var alveg yndislegt svona á köldu kvöldi. Við enduðum svo daginn saman inni í setustofu með hugleiðingu þar sem við heyrðum fallega jólasögu og sungum róleg lög. Bænakonurnar enduðu svo daginn með hverju herbergi fyrir sig. Það voru þreyttar en glaðar stelpur sem að sofnuðu hér í Hlíðinni eftir viðburðaríkan dag.

Stelpurnar vöknuðu snemma í morgun og héldu í morgunmat. Eftir morgunmat var boðið upp á jólastöðvar en þar var í boði að föndra meira, en þær sem vildu máttu pakka inn jólagjöfunum sínum og skrifa jólakort en svo var einnig í boði að fara í brennó í íþróttahúsinu, en brennóið er búið að vera sérstaklega vinsælt þessa helgina. Í hádegismat var möndlugrautur og var farið í þann klassíska jólaleik þar sem að allir fá graut og sú sem fær möndluna fékk pakka.

Við enduðum helgina allar saman á smá lokastund þar sem að farið var yfir allt það dásamlega sem við gerðum saman yfir helgina en ásamt því þá voru veittar viðurkenningar fyrir hinar ýmsu keppnir og þrautir sem eru búnar að eiga sér stað hérna yfir helgina eins og íþróttakeppnir og Leitin að Jólunum ratleikinn. Eftir lokastundina fóru stelpurnar að pakka og áttu lokastund saman sem herbergi með sinni bænakonu

Nú erum við að halda upp í rútu en hún leggur af stað héðan úr Vindáshlíð klukkan 14:00 og verðum því komnar á Holtaveg 28 rétt rúmlega 14:40.

Myndir úr flokknum er hægt að sjá hér: Myndir

Ég vil enda þennan póst á því að þakka ykkur kæru foreldrar/forráðamenn fyrir það eitt að lána okkur börnin ykkar hér um helgina. Við erum búin að eiga alveg yndislegar stundir saman. Þetta eru alveg frábærar, jákvæðar og skemmtilegar stelpur sem að þið eigið og við vonumst eftir því að fá að hitta þær aftur í Hlíðinni á nýju ári.

Fyrir þá sem vilja þá er hægt er að fylgjast með okkur í Vindáshlíð á bæði Instagram og Facebook en það er alltaf eitthvað skemmtilegt í gangi hjá okkur. En ég má til með að láta ykkur vita af Jóladeginum okkar í Vindáshlíð sem verður þann 14. desember frá 12:00 – 16:00. Þarf verður hægt að koma og njóta saman með fjölskyldunni en hér verður jólamarkaður, jólatrjásala, jólasveinar kíkja í heimsókn, ratleikur og svo margt margt fleira. Vonandi sjáum við einhverjar þar.

Annars segjum við bara Gleðileg jól og farsælt komandi ár frá öllum úr Vindáshlíð,

Hlýjar kveðjur,
Elísa Sif Hermannsdóttir
Forstöðukona