Við komum í hlíðina í glampandi sól og fallegu veðri í morgun. Nú eru allar stelpurnar búnar að koma sér fyrir, kynnast nýjum herbergisfélögum og hitta bænakonurnar sínar. Frábært veður til að kynnast staðnum betur og skoða sig um í þessu gríðarlega fallega umhverfi. Farið var í ratleik eftir hádegismat og brennókeppni eftir kaffi. Einnig er undirbúningur fyrir kvöldvöku í gangi þar sem hvert herbergi fær eina kvöldvöku til að sýna leikrit og vera með leiki. Það verður spennandi að sjá afraksturinn í kvöld. Mikil tilhlökkun og gleði er ríkjandi.
Símalínan í sveitinni er eitthvað biluð þannig að ekki hefur verið hægt að hringja í símann í dag. Við biðjumst velvirðingar á þessu. Tæknifólk hefur verið að vinna í því að koma sambandi á í dag, því verður haldið áfram í fyrramálið. Vonandi verður komið símasamband á morgun. Ég mun setja fréttir inn hér á netinu á hverjum degi svo að þið getið fylgst með.
Bestu kveðjur, Þóra forstöðukona