Fundaraðstaða og veislur í Vindáshlíð í Kjós
Í Vindáshlíð er kjörið að halda fundi eða veislur fjarri skarkala borgarinnar. Fundaraðstaða er fyrir 10-80 manns. Á neðri hæð er 100 fm salur með upphækkuðu sviði.
Á aðalhæð er 70 fm matsalur sem tekur áttatíu manns í sæti. Úr matsal er innangengt í 30 fm hlýlega setustofu.
Ferðalag í Vindáshlíð að vetri til
Vindáshlíð í Kjós býður upp á skemmtilega aðstöðu fyrir börn í leik og starfi. Tilvalið er fyrir barnakóra, skóla, íþróttafélög og hvers konar æskulýðsfélög að nýta aðstöðu Vindáshlíðar þegar haldið skal út fyrir bæinn.
Í Vindáshlíð eru ellefu svefnherbergi með svefnpokaplássi í góðum kojum. Á neðri hæð eldra hússins eru þrjú sex manna herbergi. Í nýrri hluta hússins eru átta herbergi sem hvert tekur átta manns.
Á aðalhæð eldra hluta hússins er auk þess 70 fm matsalur sem tekur áttatíu manns í sæti. Eldhúsið er vel búið, með öllum tækjum sem þörf er á..
Í Vindáshlíð er lítil kirkja. Hún tekur 60 manns í sæti. Vinsamlega látið skrifstofu vita ef óskað er eftir aðgangi að henni.
ATHUGIÐ!!!
Öll neysla áfengra drykkja og annarra vímugjafa er stranglega bönnuð. Reykingar og notkun rafrettna eru ekki leyfðar.
Gert er ráð fyrir góðri umgengni þeirra sem dvelja á staðnum. Gestir eru beðnir um að ganga frá á staðnum eins og þeir vildu koma að honum.
Nánari upplýsingar um vetrarleigu veitir Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK í síma 588-8899 kl. 09-17 alla virka daga eða með því að senda tölvupóst á helgasoley@kfum.is.