Nú fer að koma að því! – Kvöldvaka sumarbúðanna
Kvöldvaka sumarbúðanna verður haldin í annað sinn þann 18. ágúst. Fjörið byrjar klukkan 19:00 á grasinu fyrir aftan Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK, Holtavegi 28. Hoppukastalar, útileikir og andlitsmálning verða í boði að kostnaðarlausu. Sjoppan verður [...]
4.dagur í Ævintýraflokki
Í gær fimmtudag var, eftir hefðbundna dagskrá fyrir hádegi, farið í Hermannaleikinn eftir hádegi. Það er nokkurskonar eltingar- og þrautaleikur sem farið er í úti. Í kaffinu var svo nýbökuð súkkulaðikaka og mjólk. Eftir kaffi [...]
10.flokkur dagur 3.
Í dag skín sólin loks hér í hlíðinni og er það fagnaðarefni. En í dag voru stúlkurnar vaktar upp með jólalögum og gjöf í skóinn! Enda Jólaþema-dagur í dag. Matsalurinn var með jólaskeytingum og jólalög [...]
10.flokkur í Vindáshlíð
Hingað í Vindáshlíð kom í gær góður hópur stúlkna. Eftir hádegismat var farið í ratleik í rigningunni og gekk það vel. Um kvöldið var svo uppákoma sem nefnist Ævintýrahús, en þá eru stúlkurnar leiddar um [...]
Unglingaflokkur, dagur tvö
Jæja, þá er veisludagur runninn upp í Vindáshlíð. Veðrið heldur áfram að leika við okkur en það er glampandi sól þriðja daginn í röð. Í gær var skemmtilegur dagur, vakið var klukkan 10. Í hádegismat [...]
Unglingaflokkur í Vindáshlíð
Unglingaflokkurinn í ár er ansi fámennur, aðeins 21 stúlka, en við gerum gott úr því og framundan eru skemmtilegir dagar. Þegar komið var í Hlíðina í gær var byrjað á því að fara yfir reglur [...]
27. júlí 2017 – Fimmtudagurinn
Í dag fengu stelpurnar súkkulaðikúlu morgunkorn í morgunmatinn til þess að fagna því að núna eru þær búnar að gista þrjár nætur í Hlíðinni og eru því orðnar Hlíðarmeyjar. Eftir morgunmatinn var brennó og keppt [...]
26. júlí 2017 – Miðvikudagurinn
Í dag var vaknað klukkan 9.30. Eftir morgunmat og fánahyllingu var biblíulestur og á biblíulestrinum í dag bjuggu stelpurnar til bæna-gogga. Eftir biblíulesturinn var keppt í brennó, húshlaupi og að halda stórum bolta á lofti. [...]
25. júlí 2017 – Þriðjudagurinn
Í dag var vaknað klukkan 9 og farið í morgunmat, fánahyllingu og biblíulestur. Eftir biblíulesturinn var farið í brennó og mikið var líka leikið úti en það er búið að vera verulega gott veður hér [...]
24. júlí 2017 – Komudagur
Í dag komu 60 stúlkur í Hlíðina. Eftir að stelpurnar voru komnar í herbergi og búnar að koma sér vel fyrir og hitta sína bænkonu var hádegismatur. Eftir hádegismatinn var síðan ratleikur sem að hjálpaði [...]
21. júlí Veisludagur
Það var hefðbundin morgun sem fór af stað hjá okkur í Vindáshlíð. Eftir biblíulestur var svo úrslitaleikurinn í Brennó á milli Skógarhlíðar og Barmahlíðar. Leikurinn var æsispennandi. Eftir hádegismat var farið í leik þar sem [...]
20. júlí
Í morgun þegar stúlkurnar vöknuðu kíktu þær í skóinn (þær fengu þau skilaboð að setja skóinn út í glugga í gærkveldi) og fundu þar kartöflu. Þær voru ekki sáttar við það! Í morgunmat var boðið upp [...]
19. júlí
Morgunninn hjá okkur var ósköp hefðbundin með morgunmat, fánahyllingu og biblíulestri og svo að sjálfsögðu brennó og íþróttir. Stelpurnar eru duglegar að taka þátt í öllu og finnst mörgum mjög huggulegt, eftir erilsaman morgun, að [...]
18. júlí
Í morgun var borðaður góður morgunmatur og strax á eftir var farið í fánahyllingu þrátt fyrir veður. Biblíulestur hófst þar á eftir og að honum loknum var haldið áfram með brennókeppnina og byrjað á íþróttakeppnum. [...]
17. júlí -komudagur
39 frábærar stúlkur héldu af stað úr Reykjavík í morgun á vit ævintýranna í Vindáshlíð. Mikil spenna og eftirvænting réði ríkjum og gleðin skein úr andlitum þeirra. Þegar í Vindáshlíð var komið var haldið í [...]
14. júlí Veisludagur
Dagurinn í dag byrjaði hefðbundið með morgunmat, fánahyllingu og biblíulestri. Eftir hádegismat var hins vegar úrslitaleikur í brennó! Þar áttust við Grenihlíð og Skógarhlíð og ríkti mikil spenna fyrir leikinn. Eftir að úrslit voru ráðin [...]
13. júlí
Í morgun var boðið upp á Coco Puffs í morgunmat því að við vorum að fagna því að stúlkurnar í flokknum eru orðnar Hlíðarmeyjar. Eftir morgunmat var biblíulestur og íþróttir. Að loknum hádegisverði var haldið [...]
12. júlí
Í morgun eftir morgunmat var engin biblíulestur því að allar stúlkurnar voru að undirbúa guðþjónustu. Skipt var í þrjá hópa, undirbúningar- og skreytingahóp, bæna-og sönghóp og leiklistarhóp. Lögðu sig allir fram við að undirbúa guðþjónustuna [...]